18. mars 2016

118.000 krónur til Krabbameinsfélags Suðurnesja!

Fimmtudaginn 17. mars var sérstök styrktarsýning á leikritinu Frelsi sem nemendur í 8. og 10. bekk hafa sýnt á sal skólans að undanförnu. Leikarahópurinn sjálfur lagði það til við leikstjórana sína að láta ágóðann af aukasýningu renna til Krabbameinsfélags Suðurnesja eins og gert hefur verið undanfarin ár. Fullur salur fólks á öllum aldri skemmti sér á þessari lokasýning. Ágóði sýningarinnar var hvorki meira né minna en 118.000 kr. og var hann afhentur fulltrúa Krabbameinsfélagsins, Sigríði Ingibjörnsdóttur, strax að sýningu lokinni. Krakkarnir voru að vonum glaðir og ákaflega stoltir yfir þessu góða framtaki sínu. Þeir eiga sannarlega hrós skilið og skólinn er þeim og leikstjórum þeirra afar þakklátur fyrir vandaðar og skemmtilegar leiksýningar.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan