Bleikur dagur í Heiðarskóla
Föstudagurinn 11. október verður bleikur dagur í Heiðarskóla en októbermánuður er helgaður baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Til að sýna baráttunni stuðning hvetjum við starfsfólk og nemendur til að mæta í skólann í einhverju bleiku þennan dag.