3. apríl 2017

Flottur árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanema

Stærðfræðikeppni grunnskólanema  fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 14. mars s.l.  Þar voru þátttakendur 119 úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Ragnheiður Gunnarsdóttir stærðfræðikennari í FS hafði umsjón með keppninni eins og undanfarin ár.

Verðlaunaafhending fór síðan fram fimmtudaginn 30. mars.  Þar mættu tíu efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum sínum, stærðfræðikennurum og skólastjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal en Íslandsbanki og Verkfræðistofa Suðurnesja gáfu verðlaunin fyrir 1. - 3. sæti í hverjum árgangi. Verðlaun fyrir fyrsta sæti voru 20.000 kr., fyrir annað sætið 15.000 kr. og 10.000 kr. fyrir það þriðja. Að auki fengu þrír efstu í 10. bekk grafiskan vasareikni frá Verkfræðistofu Suðurnesja. Þau Sigrún Vilhelmsdóttir frá Verkfræðistofu Suðurnesja og Sighvatur Ingi Gunnarsson frá Íslandsbanka afhentu verðlaunin.

Okkar nemendur stóðu sig prýðisvel og voru sjö nemendur boðaðir á verðlaunaafhendinguna. Úrslitin voru á þessa leið:

8. bekkur:

Stefán Ingi Víðisson 8. DG - 1. sæti

Lovísa Gunnlaugsdóttir 8. KÞ - 6. - 12. sæti

9. bekkur:

Birgitta Rós Ásgrímsdóttir 9. ÞE - 3. sæti

Elva Rut Björnsdóttir 9. ÞE - 4. sæti

10. bekkur

Bergur Daði Ágústsson 10. ÍS - 3. sæti

Svava Rún Sigurðarsdóttir 10. ÍS - 6. - 10. sæti

Þorvaldur Máni Danivalsson 10. ÍS - 6. - 10. sæti.

 

Við óskum þessum nemendum innilega til hamingju með árangurinn. Myndir má sjá í myndasafni.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan