24. ágúst 2018

Heiðarskóli er hnetulaus skóli

Við minnum á að Heiðarskóli er hnetulaus skóli og má því ekki koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira. 
 
Brýnt er að tekið sé tillit til þeirra sem hafa bráðaofnæmi fyrir hnetum því það getur valdið mjög slæmum og hættulegum ofnæmisviðbrögðum. Við biðjum ykkur því að gæta þess að börnin komi með hnetufrítt nesti í skólann. Það sama gildir um t.d. bakkelsi á árshátíðum eða á bekkjarskemmtunum.
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan