16. febrúar 2018

Íþróttafjör í næstu viku

Í næstu viku, dagana 19. - 22. febrúar, verður íþróttafjör í íþróttahúsinu. Samliggjandi árgangar munu þá leika saman í ýmsum skemmtilegum íþróttaleikjum í tvöfaldri kennslustund. Nemendur eru hvattir til að koma í þægilegum fötum sem heppileg eru til hreyfingar þann dag sem íþróttastundin þeirra er. Vegna fjölda munu nemendur ekki geta haft fataskipti eða farið í sturtu í klefunum.
 
Skipulag íþróttadaganna er sem hér segir:
 
Mánudagur 19/2
 
09.50-11.10 - 1. og 2. bekkur: Ýmsir leikir
11.50-13.10 -  3. og 4. bekkur: Yoshi
 
Miðvikudagur 21/2
 
09.50 - 11.10 - 7. og 8. bekkur: Survivor
12.30 - 13.50: Starfsfólk og nemendur í 10. bekk etja kappi
 
Fimmtudagur 22/2
 
09.50-11.10 - 9. og 10. bekkur: Körfuskotbolti 
12.30-13.50 - 5. og 6. bekkur: Gryfjubolti
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan