28. nóvember 2017

Jólaföndur foreldrafélags Heiðarskóla 2017

Fimmtudaginn 30. nóvember frá kl. 17 - 19  verður hið árlega jólaföndur foreldrafélags Heiðarskóla á sal skólans.

Boðið verður upp á þrjár tegundir af föndri og laufabrauð.

Nauðsynlegt að fólk komi með áhöld til að skera út laufabrauðið, eitthvað til að setja laufabrauðið í að lokinni steikingu og límstifti.

Í ár verður ekki notast við málningu í föndrinu. 

Sjoppa á staðnum og munu krakkar úr 10. bekk vera með pizzur og drykki til sölu.

Hvetjum foreldra / forráðamenn barna til að mæta og eiga notalega stund saman í góðum félagsskap.

Athugið að það er ekki posi á staðnum.  Einungis tekið við peningum.

Foreldrafélag Heiðarskóla

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan