9. febrúar 2016

Öskudagur

Öskudagur verður með hefðbundnu sniði hér í Heiðarskóla. Allir nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 8.10 og eru þeir hvattir til að mæta í öskudagsbúningum. Á dagskrá verða m.a. draugahúsferðir fyrir þá sem vilja, dans í íþróttasal, spil og leikir. Þetta er skertur nemendadagur og mun því skipulögðu skólastarfi ljúka kl. 11.00. Nemendur geta borðað áður en þeir fara heim. Á matseðli Skólamatar er samloka, safi og ávöxtur. Frístundaskólinn verður opinn.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan