22. nóvember 2016

Skertur kennsludagur á föstudaginn og aðventudagskrá

Föstudagurinn 25. nóvember er skertur kennsludagur og mun skóla ljúka kl. 11.10. Nemendur í 1.-4. bekk geta borðað hádegismatinn sinn áður en þeir fara heim eða í frístundaskólann. Rétt er að taka fram að foreldrar nemenda í 5.-10. bekk greiða ekki fyrir máltíðir á skertum dögum. 
 
Þennan dag ætlum við að hleypa jólaandanum inn í skólann okkar og munum m.a. færa skólastofurnar í jólabúning. Skreytinganna fáum við svo að njóta alla aðventuna. Við hvetjum nemendur til að mæta íklædda einhverju sem minnir á jólin þennan dag.
 
Dagskrá aðventunnar verður annars með nokkuð hefðbundnu sniði. Hér er yfirlit yfir helstu viðburði sem eru sameiginlegir fyrir allan skólann eða aldursstig.
 
* Föstudaginn 25. nóvember verður hafist handa við að skreyta stofur í 1. - 6. bekk. Í 7.-10. bekk fer fram stofuskreytingakeppni.
 
* 28. nóvember - 2. desember verða sungnir jólasöngvar á sal.
 
* Dagana 5. - 9. desember fá nemendur súkkulaði og piparkökur á sal skólans.  
 
* 14. desember verður hátíðarmatur í hádeginu. Þeir sem ekki eru í mataráskrift þennan dag geta keypt staka máltíð, þ.e. „hátíðarmiða“ á 550 kr. Þeir sem eiga matarmiða geta skipt honum út fyrir „hátíðarmiða“ í mötuneytinu. Salan (og miðaskiptin) stendur yfir dagana 28. nóv. til 8.des. milli kl. 9-11 í mötuneytinu. Aðeins er hægt að borga með peningum.
 
* 15. desember sýna nemendur í leiklistarvali nemendum í 1. - 4. bekk jólaleikrit á sal.
 
* Mánudaginn 19. desember lýkur allri kennslu kl. 13.50.
 
* Þriðjudaginn 20. desember er jólahátíð Heiðarskóla. Allir nemendur verða saman í íþróttahúsinu þar sem m.a. verður gengið í kringum jólatréð en fara svo með umsjónarkennara í sínar heimastofur eins og venjan er. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur skiptist á gjöfum þetta árið líkt og í fyrra. Jólahátíðin hefst kl. 9.00 og áætlað er að henni ljúki um kl. 10.30. Þennan dag er enginn frístundarskóli. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag jólahátíðar veita umsjónarkennarar þegar nær dregur.
 
 
 
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan