13. maí 2015

Skólahreystikeppni 5.-7. bekkja

Miðvikudaginn 6. maí öttu um 20 nemendur í 5.-7. bekk kappi í skólahreystiþrautum Heiðarskóla. Líf og fjör var í íþróttasalnum og mikill kraftur bæði í þátttakendum og áhorfendum. Skólamet voru slegin og hvaðeina! Um 20 vaskar stúlkur og tápmiklir drengir spreyttu sig á þrautunum. Lovísa Björk 5.HT gerði hvorki meira né minna en 77 armbeygjur og bekkjarsystir hennar Klara Lind gerði sér lítið fyrir og setti met í hreystigreip þegar hún hékk í 5.09 mínútur. Aron Ingi í 6.HT var svo sannarlega með krafta í kögglum en hann gerði 14 upphýfingar. Bjarki Freyr í 7.JB var eitilharður þegar hann setti Heiðarskólamet í dýfum með 21 dýfu. Þau Bartoz í 6.EN og Ingibjörg Birta í 7.JB geystust í gegnum hraðaþrautina eins og eldibrandar. Bartoz fór hringinn á sléttri mínútu og Ingibjörg Birta var aðeins tveimur sekúndum frá Heiðarskólametinu en hún fór brautina á 53,5 sekúndum. Nemendur úr Skólahreystiliði Heiðarskóla aðstoðuðu Helenu íþróttakennara við framkvæmd og skipulag keppninnar. Mikill áhugi er fyrir Skólahreysti meðal yngri nemenda skólans og ljóst að árangur Skólahreystiliða okkar undanfarin ár hefur vakið áhuga og ýtt undir metnað þeirra yngri.    

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan