6. desember 2013

Skólahreystikeppni Heiðarskóla

Skólahreystikeppni Heiðarskóla var haldin miðvikudaginn 4. desember í íþróttasal skólans. Þar öttu kraftmiklir krakkar úr 8.-10. bekk kappi og stóðu þeir sig allir frábærlega. Skólamet voru slegin í hraðaþraut stúlkna, dýfum, upphífingum og höngu. Þau Arnór Elí í 10.AÓ og Katla Rún í 9.EP voru fljótust í gegnum hreystibrautina, Andri Már 10.AÓ gerði flestar upphífingar og dýfur og Elma Rósný 9.EP gerði flestar armbeygjur og hékk lengst. Við óskum öllum þeim sem tóku þátt í keppninni til hamingju með frammistöðu sína. Fleiri myndir má sjá í myndasafni.

 

 

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan