7. júní 2024

Skólaslit og útskrift

Skólaárinu 2023 – 2024 var slitið fimmtudaginn 6. júní. Skólaslitin voru að venju þrískipt, fyrir     1.-3. bekk, 4.-6. bekk, 7.-9. bekk og svo útskrift 10. bekkjar. 

Í 1. - 6 . bekk lásu fulltrúar hvers bekkjar upp bekkjarskýrslu þar sem m.a. komu fram upplýsingar um það sem þeim fannst merkilegast á skólaárinu, hvað þau lærðu mest, hvað var skemmtilegast og hvað það var sem þau muni aldrei gleyma. Þetta tókst mjög vel og var gaman að heyra hvernig nemendur okkur voru að upplifa skólaárið.

Ljóðasamkeppni Heiðarskóla fór fram á vordögum eins og áður og fer keppnin fram á öllum stigum. Samkvæmt venju voru afhent verðlaun fyrir sigurljóðið á skólaslitum. Á yngsta stigi var það Mjölnir Ólafur Jónsson nemandi í 2. bekk sem hlaut ljóðaverðlaunin fyrir ljóð sitt Ég veit ekki hvernig mér líður. Á miðstigi fékk Hilmir Rökkvi Hjartarson nemandi í 5. bekk verðlaunin fyrir ljóð sitt Tunglið og á elsta stigi var það Rut Páldís Eiðsdóttir nemandi i 8. bekk sem fékk verðlaunin en ljóðið hennar heitir Hvers vegna.

Á hverju ári er haldið skákmót Heiðarskóla þar sem nemendur úr 4. – 10. bekk geta tekið þátt og er skákmeistari skólans krýndur. Í ár var það Haukur Hersir Einarsson sem fékk titilinn skákmeistari Heiðarskóla 2023 - 2024.

 

Í 9. bekk kosta velunnarar skólans verðlaun til handa nemanda sem sýnt hefur einstaka eljusemi og þrautseigju í bóklegu námi. Arnar Bergmann Guðmundsson hlaut þau verðlaun í ár.

 

 

Tónlistaratriði voru á skólaslitum og útskrift 10. bekkjar og var það Guðríður Eva Halldórsdóttir tónlistarkennari sem hélt utan um þann lið og þökkum við henni kærlega fyrir.

Á útskrift 10. bekkjar spilaði Emilía Sigrún Hauksdóttir á píanó. Halldóra Mjöll Ingiþórsdóttir formaður nemendaráðs flutti fallega ræðu fyrir hönd nemenda og umsjónarkennarar hópsins þær Guðrún Elísa Ásbjörnsdóttir og Esther Níelsdóttir voru með skemmtileg orð til nemenda sinna og gesta.  Ýmsar viðurkenningar voru veittar en meðal þeirra var viðurkenningin Heiðursnemandi Heiðarskóla sem Gunnar Jónsson, fyrrverandi skólastjóri, kostar. Í ár var það Halldóra Mjöll Ingiþórsdóttir sem hlaut þessi verðlaun en að mati kennara og starfsmanna hefur hún verið sérstaklega jákvæð, kurteis og heiðarleg í samskiptum við nemendur og starfsfólk skólans, verið til fyrirmyndar í framkomu sinni og ávallt gert sitt besta í sínum verkefnum.

Við útskrift fá nemendur útskriftartrefla um leið og þeir taka við vitnisburðarskjölum sínum. Treflarnir eru gjöf frá skólanum og foreldrafélagi Heiðarskóla. Að því loknu var skóla slitið af Lóu Björg skólastjóra og árgangur 2008 þar með útskrifaður úr grunnskóla.

Að útskrift lokinni var kaffisamsæti með nemendum, foreldrum/forráðamönnum þeirra og starfsfólki skólans. Þær Ólöf Jónsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir heimilisfræðikennarar og Guðbjörg Fríða Pálmarsdóttir stoðkennari sáu um veitingarnar. Allar uppskriftir má finna á bloggsíðu heimilisfræðikennara Heiðarskóla

https://eldabaka.wordpress.com/2022/06/03/skolaslit/?fbclid=IwAR1oWH_3m2GtNoH8Mu0OGX0mBNIgg_onJQ53T7dcTPJXPTl_p3bA79Djc7A

Það er venja á starfsdögum að vori að kveðja þá starfsmenn sem hætta hjá okkur og veita þeim gjafir sem náð hafa 10 ára starfsaldri í Heiðarskóla. Í apríl kvaddi Lilja Ösp Þorsteinsdóttir stuðningsfulltrúi okkur. Aldís Óskarsdóttir kennari í 4. bekk, Guðrún Elísa Ásbjörnsdóttir kennari í 10.bekk, Hjördís Rós Egilsdóttir kennari og María Tinna Hauksdóttir kennari í 1. bekk  munu halda  á önnur mið eftir sumarfrí.  Stuðningsfulltrúarnir Björn Bogi Guðnason, Elísabet María Kristinsdóttir, Garðar Franz Gíslason, Ingunn Birna Einarsdóttir, Lárus Logi Elentínusson, Ragnar Ingi Sigurðsson og Rakel Jóhanna Jóhannsdóttir eru öll að fara í háskólanám. Anna Pála Árnadóttir lauk störfum hjá Reykjanesbæ á haustönninni. Öllu þessu frábæra fólki höfum við þakkað ánægjulegt samstarf og einstaklega góð viðkynni. María Guðmunda Pálsdóttir, námsráðgjafa, var einnig veitt gjöf fyrir 10 ára starfsafmæli. Einnig var Bryndís Jóna Magnúsdóttir skólastjóri kvödd þar sem hún er að leggja frá sér stjórnartaumana og fara á ný mið. Bryndísi Jónu þökkum við kærlega samstarfið og allt sem hún hefur gefið okkar skóla og skólasamfélagi.  

Myndir af skólaslitum má finna í myndasafni á heimasíðu skólans.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan