16. mars 2023

Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Stapa í 9. mars. Þar komu saman keppendur úr 7. bekk frá öllum grunnskólum Reykjanesbæjar og kepptu fyrir hönd síns skóla. Keppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember og markmið hennar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði.

Fyrir hönd Heiðarskóla tóku þátt Gunnar Helgi Pétursson og Jón Ingi Garðarsson, varamaður þeirra var Erna Ósk Leifsdóttir. Þeir stóðu sig frábærlega og sýndu hversu mikið þau hafa lagt sig fram síðustu vikur í æfingum, bæði í skólanum og heima.


Jón Ingi Garðarsson lenti í 2. sæti í keppninni, sem er frábær árangur þar sem keppnin var einstaklega jöfn og spennandi.

Allir lesarar stóðu sig með mikilli prýði og mjög erfitt var fyrir dómara að gera upp á milli þeirra. Það er því ljóst að nemendur í Reykjanesbæ hafa staðið sig afar vel í ræktunarhluta keppninnar í skólunum áður en til lokahátíðarinnar kom.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan